Gamli skólinn skiptir um hlutverk
Gamli skólinn við Skólaveg í Keflavík er að skipta um hlutverk. Síðasti kennsludagurinn var í gærdag.Skólinn var byggður árið 1911 og var staðsetning skólahússins miðuð við það að húsið væri mitt á milli Keflavíkur og Njarðvíkur. Síðustu árin hefur kennsla 6 ára barna farið fram í húsinu en í framtíðinni mun það hýsa Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum.Myndirnar voru teknar í gær á þessum tímamótum í starfsemi hússins.