Föstudagur 31. janúar 2003 kl. 10:43
Gamli Gullfaxi á Keflavíkurflugvelli

Þrjátíu og sex ára þota af gerðinni B727-100 hafði viðdvöl á Keflavíkurflugvelli síðdegis í gær en þotan hét upphaflega Gullfaxi og var í eigu Flugfélags Íslands. Var hún fyrsta þotan sem Íslendingar eignuðust og kom hingað til lands sumarið 1967. Þotan er nú í eigu flutningafyrirtækisins UPS og sinnir fraktflutningum.Í Morgunblaðinu í dag segir að Jóhannes R. Snorrason, fyrrverandi flugstjóri hafi sótt þotuna fyrir Flugfélag Íslands til Seattle snemmsumars 1967 og lenti henni á Reykjavíkurflugvelli en hún var smíðuð sérstaklega fyrir FÍ.
"Þetta var afskaplega góð vél og ég saknaði hennar mjög," sagði Jóhannes í gær við Morgunblaðið. Hann flaug þotunni m.a. til áfangastaða á Norðurlöndum, í sólarlandaferðir og til Grænlands. Jóhannes hætti störfum árið 1980 og lauk flugstjóraferli sínum á þessari þotutegund. Gamli Gullfaxi hefur ekki komið til Íslands frá því hann var seldur árið 1984.
Meðfylgjandi mynd tók Hilmar Bragi af þotunni á stæði við Leifsstöð undir kvöld í gær.