Gamla þvottastöðin að dekkjaverkstæði
Húsnæðið sem áður gegndi hlutverki þvottastöðvar fyrir rútubifreiðar Sérleyfisbifreiðar Keflavíkur mun nú fá nýtt hlutverk en sótt hefur verið um að hefja þar rekstur hjólabarðaverkstæðis. Það er fyrirtækið Friðrik sf. sem sótti um breytta notkun á húsinu að Hafnargötu 12 í Keflavík. Gerðar verða breytingar á húsinu fyrir nýjan rekstur, m.a. settar innkeyrsluhurðir á austurhlið þess.