Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Gagnaverið komið í Helguvíkurhöfn
Laugardagur 15. október 2011 kl. 21:47

Gagnaverið komið í Helguvíkurhöfn

Gagnaver Verne Global er komið með flutningaskipi til landsins. Það er fyrirtækið Colt í Bretlandi sem sett hefur saman 500 fermetra gagnaver úr 37 einingum sem komið verður fyrir í húsum Verne Global á Ásbrú í Reykjanesbæ.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Skipið sem flytur gagnaverið kom til hafnar í Helguvík síðdegis og í fyrramálið verður hafist handa við að afferma skipið og flytja einingarnar 37 að Ásbrú. Þar verður gagnaverið sett upp á næstu vikum og gert er ráð fyrir að gagnaverið verði komið í rekstur um áramót. Fyrsti viðskiptavinurinn er einnig kominn í hús en það er bandaríska fyrirtækið Datapipe sem mun fá hýsingu í nýja gagnaverinu.

Meðfylgjandi mynd var tekin í Helguvík rétt í þessu þar sem skipið var komið að bryggju og kraninn beið klár á bryggjunni.

VFmynd/hilmarbragi