Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Gagnaverið á Ásbrú stækkar í sumar
Miðvikudagur 29. maí 2013 kl. 18:00

Gagnaverið á Ásbrú stækkar í sumar

Spennandi tímar eru framundan hjá Verne Global á Ásbrú. Undanfarin misseri hefur fyrsti áfangi gagnaversins veri í rekstri og nýverið hefur fyrirtækið tilkynnt um stækkun gagnaversins. Í þessari viku kom til landsins annar áfangi gagnaversins þegar búnaður frá Colt kom til Helguvíkur þar sem honum var skipað upp í gær. Sá búnaður samanstendur af tilbúnum gámaeiningum sem raðað er saman í húsnæði Verne á Ásbrú.

Sífellt eru fleiri ríki, einkafyrirtæki og opinberar stofnanir að reyna að leita leiða til þess að takmarka orkunotkun og mengandi útblástur. Verne Global er því að auka við getu gagnaversins á Ásbrú til að mæta þessum þörfum viðskiptavina sinna sem vilja bæta orkunýtni og fá arðbærar og sjálfbærar gagnalausnir.

Verne Global tilkynnti einnig nýlega um söluaukningu í Evrópu. Viðskiptavinir í Evrópu hafa verið að sýna gagnaverinu á Íslandi mikinn áhuga vegna hækkandi orkuverðs í Evrópu, sem og áframhaldandi þrýstingi á fyrirtæki um að skuldbinda sig til þess að minnka útblástur kolefna í andrúmsloftið. Vegna þessarar aukinnar eftirspurnar í Evrópu hefur Verne Global nýlega ráðið til sín Andreas Strum sem forstjóra viðskiptaþróunar í Þýskalandi, Austurríki og Sviss.

Að lokum þá er vert að minnast á það að Verne Global hlaut fyrir skemmstu Computerworld Honors Program verðlaunin árið 2013 fyrir að innleiða átaksverkefni í sjálfbærri upplýsingatækni. Þar sem gagnaverið er fyrsta fullkomna verið í geiranum sem notast aðeins við 100% endurnýtanlega orku, hefur Verne Global verið verðlaunað fyrir að minnka orkunotkun í upplýsingartækni og nota „græna tækni“ til þess að spara orku og minnka útblástur kolefna.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024