Gáfu minningargjöf um góðan félaga til HSS
Félagar úr Lionsklúbbnum Garði komu færandi hendi í gær á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Færðu þeir D-deild HSS sjónvarpstæki að gjöf til minningar um góðan félaga sinn úr klúbbnum, Anton Eyþór Hjörleifsson. Anton lést þann 10. desember á síðasta ári.
Á efri myndinni taka þær Bryndís Sævarsdóttir og Þórunn Benediktsdóttir við gjöfinni frá Pálma Hannessyni formanni Lionsklúbbsins Garðs. Á neðri myndinni eru það Lionsfélagar við gjöfina sem hefur verið komið haganlega fyrir uppi á vegg á stofu 50 á D-deild HSS.
VF-myndir: Hilmar Bragi