Gaf trúlega upp rétt nafn
Íranski ferðamaðurinn, sem svipti sig lífi á gistiheimili í Njarðvík eftir að hafa verið kyrrsettur hér á landi, gaf að öllum líkindum upp rétt nafn þegar hann var yfirheyrður. Hann var með falsað vegabréf en trúlega ósvikið ökuskírteini.Nánari upplýsinga um bakgrunn hans er vænst frá erlendum lögregluyfirvöldum.