Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Gætið varúðar og komið ekki í heimsóknir á Hrafnistuheimilin
Þriðjudagur 3. mars 2020 kl. 09:31

Gætið varúðar og komið ekki í heimsóknir á Hrafnistuheimilin

Vegna Kórónaveirunnar hafa Hrafnistuheimilin sent út tilkynningu þar sem gestir eru hvattir til að gæta varúðar og ef minnsti grunur er um veikindi eða ef viðkomandi er að koma frá hættusvæðum að koma ekki í heimsóknir, þar sem heimilisfólk á Hrafnistuheimilum er viðkvæmt fyrir sjúkdómum.

Í tilkynningu segir:

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Íbúar Hrafnistu eru flestir aldraðir og / eða með ýmsa undirliggjandi sjúkdóma. Þeir eru því í sérstökum áhættuhóp tengt því að veikjast alvarlega af Kórónaveirunni. Við viljum því biðja þá sem eru með kvefeinkenni, flensulík einkenni eða hafa ferðast nýlega til skilgreindra áhættusvæða samkvæmt upplýsingum á vef Landlæknis að gæta varúðar og koma ekki í heimsóknir á Hrafnistuheimilin.

Mikilvægt er að þeir sem eru frískir, hafa ekki verið á skilgreindum áhættusvæðum og hafa því ekki ástæðu til að ætla að þeir hafi smitasta af veirunni hafi eftirfarandi í huga:

Handþvottur er mikilvægasta ráðið til að forðast smit og einnig er mikilvægt að nota handspritt. Hafið þetta alltaf í huga þegar komið er inn á heimilin.

Forðist alla líkamlega snertingu eins og hægt er svo sem handabönd, faðmlög og kossa við íbúa.

Forðist að koma við snertifleti í almennum rýmum svo sem handriði og hurðarhúna.

Við bendum ykkur á að kynna ykkur leiðbeiningar á vef Landlæknisembættisins https://www.landlaeknir.is/ því staða mála og leiðbeiningar þeim tengdar geta breyst dag frá degi.

Heilbrigðissvið Hrafnistu