Fréttir

Gæti orðið jólalegur snjór í dag
Þriðjudagur 24. nóvember 2015 kl. 09:02

Gæti orðið jólalegur snjór í dag

Norðvestan og vestan 8-13 m/s og skúrir eða él við Faxaflóa í dag, en styttir upp í nótt. Austlæg eða breytileg átt 3-8 á morgun og skýjað með köflum, en líkur á dálitlum éljum eftir hádegi. Kólnandi veður, vægt frost á morgun.

Veðurhorfur á landinu

Norðvestan 15-25 m/s með snjókomu eða éljum N- og A-til, hvassast undir Vatnajökli. Mun hægari S- og V-lands og víða bjart, en líkur á stöku éljum V-til eftir hádegi. Frost 0 til 6 stig í dag. Úrkomulítið um allt land í kvöld og lægir í nótt, suðlæg eða breytileg átt 3-10 á morgun. Byrjar að slydda og síðar rigna um og eftir hádegi, fyrst SV-til, en bjart með köflum NA-lands fram eftir degi. Vaxandi suðvestanátt annað kvöld. Hlýnar í veðri, hiti 3 til 7 stig V-til undir kvöld, en um frostmark fyrir austan.

Hugleiðingar veðurfræðings á Veðurstofu Íslands

Norðvestan stormur geisar um austanvert landið í dag allt suður undir Vatnajökul og má reikna með öflugum hviðum. Það er því varasamt að keyra nálægt fjöllum á þessum slóðum, og einnig má búast við talsverðri ókyrrð í innanlandsflugi. Með storminum eru él eða snjókoma fyrir norðan, einkum frá Siglufirði að Vopnafirði, en það dregur úr úrkomunni þegar líður á daginn og lægir síðan í nótt. Mun hægari vindur verður fyrir sunnan og vestan og víða bjart, en þó er útlit fyrir að dálítil él slæðist inn á V-vert landið eftir hádegi, þ.m.t. höfuðborgarsvæðið. Ef þau koma inn verður þó ekki mikil úrkoma sem fylgir þeim og líklegast að þetta verði jólalegur snjór ef einhver verður. Á morgun verður síðan viðsnúningur á veðrinu, það hlýnar og fer að rigna, fyrst SV-til, en NA-lands undir kvöld. Annað kvöld bætir síðan í vindinn sem endar í suðvestanhvassviðri og áframhaldandi bleytu á fimmtudag. Seinni partinn snýst síðan aftur í norðlæga átt og kólnar með éljum fyrir norðan og helst það veður að mestu óbreytt fram yfir helgi.


Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024