Gæsluvarðhald framlengt yfir manninum
Gæsluvarðhald yfir karlmanni á sextugsaldri sem grunaður er um að hafa orðið sambýliskonu sinni að bana í Sandgerði í lok marsmánaðar hefur verið framlengt til 20. maí næstkomandi að kröfu lögreglustjórans á Suðurnesjum. Úrskurðurinn hefur hefur verið kærður til Landsráttar.
Rannsókn málsins hefur miðað vel en beðið er eftir gögnum meðal annars erlendis frá er varða hana.