Gæsluvarðhald framlengt í hnífstungumáli
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum krafðist þess í dag fyrir Héraðsdómi Reykjaness að gæsluvarðhald yrði framlengt yfir konu sem grunuð er um að hafa stungið telpu með hnífi í brjóstið þann 27. september sl. en atburðurinn átti sér stað á heimili telpunnar í Reykjanesbæ. Héraðsdómur úrskurðaði konuna í áframhaldandi gæsluvarðhald allt til mánudagsins 30. nóvember n.k.