Gæslan úr hlýlegu koti í höll?
	Ásmundur Friðriksson, alþingismaður var ásamt fleirum í flugskýli 831 á Keflavíkurflugvelli að kynna sér verkefnið Iceland Air Meet ásamt fleiri þingmönnum. Ásmundur setti nokkrar myndir úr heimsókn sinni í flugskýlið á fésbókarsíðu sína og segir þar að flugskýlið taki léttilega eina stóra farþegaþotu, 2 þyrlur og 8 herþotur.
	
	„Svo er verið að liggja á þingsályktun um að flytja Gæsluna til Keflavíkurflugvallar. Flutningur frá Reykjavík er eins og að flytja úr hlýlegu koti í höll. Hver er andstæður því?,“ spyr þingmaðurinn.
	
	


 
	
					 
	
						


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				