Gæslan í húsnæðisvandræðum á meðan risastórt flugskýli stendur ónotað
Samkvæmt heimildum VF er ekkert því til fyrirstöðu að Landhelgisgæslan geti flutt starfsemi sína til Keflavíkurflugvallar ef vilji til þess er fyrir hendi. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar hefur í sinni umsýslu margskonar aðstöðu sem nýst gæti undir rekstur ýmissa stofnanna, þar með talið landhelgisgæslunnar. Kjartan Eiríksson, framkvæmdastjóri Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, segir í samtali við VF að þessi mál séu til skoðunar m.a. í nefnd á vegum dómsmálaráðuneytisins um mögulega nýtingu eigna á svæðinu undir starfsemi embætta á vegum þess, þ.m.t. Landhelgisgæslunnar.
Til staðar á flugvallarsvæðinu er fullkomið viðhaldsskýli sem tekið gæti við allri flugstarfsemi gæslunnar og meiru til. Skýlið er í umsjá utanríkisráðuneytisins og hefur sú aðstaða verið kynnt fyrir yfirmönnum gæslunnar og dómsmálaráðuneytisins.
Haft er eftir Georg Lárussyni, forstjória Landhelgisgæslunnar, í fréttum Ruv í gær að aðstaða Gæslunnar á Reykjavíkurflugvelli sé alls ófullnægjandi. Þar sé jafnvel ekki pláss fyrir starfsmennina, hvað þá stærri flugflota Gæslunnar. Óvissan um skipulag og framtíð Vatnsmýrarsvæðisins valdi vandræðum sem brýnt sé að leyst verði úr hið fyrsta.
Verkefni Gæslunnar hafa stóraukist m.a. vegna brotthvarfs bandaríska hersins af Miðnesheiði og flugflotinn stækkað. Það þrengir því mjög að rekstrinum. Á meðan stendur risastórt flugskýli á Keflavíkurflugvelli ónotað.
Mynd: Frá Keflavíkurflugvelli.