Fyrstur innflytjenda í bæjarstjórn
- í Garði og Sandgerði
Vitor Hugo sat sinn fyrsta bæjarstjórnarfund í gærkvöldi, fyrstur innflytjenda í sögu Sandgerðis og Garðs.
„Rúm 20% íbúa sveitarfélagsins eru af erlendum uppruna og má því með sanni segja að þessi tímamót séu löngu tímabær,“ segir á fésbókarsíðu J-listans í sveitarfélaginu.
Vitor Hugo er fæddur og uppalinn í Portúgal en hefur búið á Íslandi í rúm 20 ár. Ásamt því að vera fyrsti varabæjarfulltrúi J-listans, situr Vitor einnig í íþrótta- og tómstundaráði og ferða-, safna og menningarráði.