Fyrstu tvær konurnar á sjúkrabíl á Suðurnesjum
Það er óhætt að segja að blað hafi verið brotið í sögu sjúkraflutninga á Suðurnesjum þann 16. júní síðastliðinn þegar þær Ingibjörg Þórðardóttir og Kolbrún Jóhannsdóttir voru fyrstu konurnar til að fara saman í útkall. „Við áttuðum okkur ekki á þessu fyrr en á leiðinni til baka eftir útkallið þegar við fórum að spjalla saman,“ segja þær.
Báðar eru Kolbrún og Ingibjörg hjúkrunarfræðingar og starfa við sjúkraflutninga í Grindavík. Ingibjörg er Grindvíkingur í húð og hár og hjúkrunardeildarstjóri á hjúkrunardeildinni Víðihlíð í Grindavík. Hún hefur starfað hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja meira eða minna frá árinu 1994. Kolbrún er úr Reykjavík en bjó áður í Keflavík. Hún flutti til Grindavíkur árið 2010 og hefur starfað sem hjúkrunarfræðingur á heilsugæslunni þar síðan 2012 og er deildarstjóri skólaheilsugæslu í Grindavík. Þær byrjuðu báðar að vinna við sjúkraflutninga fyrir ári síðan. „Ég var búin að fást við það sama í tvo áratugi og var við það að brenna út. Þá datt þetta starf upp í hendurnar á mér, fyrir tilstuðlan Kolbrúnar. Það breytti miklu fyrir mig varðandi hjúkrunarstarfið að taka líka vaktir á sjúkrabílnum,“ segir Ingibjörg. Kolbrún var búin að kynna sér námið og starfið og kveðst hafa rætt það við Ingibjörgu að þær myndu báðar sækja um því hún vissi að Ingibjörg þyrfti á tilbreytingu að halda. Þær stunduðu svo grunnnámið saman í Sjúkraflutningaskólanum sem er staðsettur á Akureyri. Það var kennt í fjarnámi og verklegi hlutinn kenndur á Selfossi. „Við lukum námi sem yfirleitt tekur eina önn á um það bil fimm vikum. Það var bara harkan sex. Við höfum reyndar afskaplega góðan grunn úr hjúkrunarfræðinni,“ segja þær.
Sjúkraflutningar frábrugðnir hjúkrun
Samtals eru sjúkraflutningamenn í Grindavík sjö og er fólk á bakvöktum í viku í senn, þriðju hverju viku. Upphaflega skipu þær einni vakt á milli sín en frá síðustu áramótum hefur Ingibjörg verið með heila vakt og Kolbrún tekið afleysingar. Báðar halda þær áfram að sinna störfum sínum sem hjúkrunarfræðingar meðfram sjúkraflutningunum. „Þegar kallið kemur stimplar maður sig út úr vinnunni sem hjúkrunarfræðingur og skiptir um jakka. Svo þegar útkallinu líkur mætir maður aftur og bætir upp tímann sem tapaðist í útkallinu,“ segir Kolbrún. Þær eru þó sammála um að starfið við sjúkraflutningana sé frábrugðið starfi hjúkrunarfræðingsins. „Þjónusta utan spítala er öðruvísi en innan spítala og maður er í öðru hlutverki,“ segir Kolbrún. Ingibjörg bætir við að sem hjúkrunarfræðingur sé hún alltaf búin að fá allar upplýsingar um sjúklinga en að í sjúkraflutningunum sé hún að taka við upplýsingum og sinna bráðatilfellum „Það má því segja að röðin riðlist og þetta sé öfugt í sjúkraflutningunum miðað við í hjúkrun.“
Blöndun á vinnustöðum af hinu góða
En hvers vegna eru ekki fleiri konur sem starfa við sjúkraflutninga?
„Starfið er líkamlega erfitt og bindandi því fólk þarf að geta mætt um leið og útkall berst,“ segja þær og benda á að það geti tekið á að lyfta þungu fólki. „Ef okkur vantar hjálp þá hóum við í samstarfsmennina og þá eru þeir snöggir að hlaupa til og hjálpa okkur. Samstarfsmennirnir okkar eru alveg frábærir og hafa kennt okkur mikið,“ segir Kolbrún og Ingibjörg er sama sinnis. Þá segir Ingibjörg starfið geta verið slítandi, jafnt fyrir konur sem karla.
Þær segja alltaf til góða á vinnustöðum að þar starfi fólk af báðum kynjum. „Það geta komið upp tilvik þar sem gæti hentað betur að við konurnar sinnum sjúklingnum og svo öfugt,“ segir Ingibjörg. Alltaf eru tveir starfsmenn á hverjum sjúkrabíl, einn aftur í með sjúklingnum og annar að keyra. Ef um erfið tilvik er að ræða eins og endurlífgun, öndunaraðstoð og meiriháttar áverka eru tveir eða fleiri aftur í.
Starf sjúkraflutningamanna í Grindavík er nokkuð annasamt og voru útköllin á síðasta ári um þrjú hundruð. Það sem af er þessu ári hafa þau verið um 175. Útköllin eru mis alvarleg. Eftir erfið útköll, þá er boðað til viðrunarfundar þar sem farið er yfir alla þætti útkallsins. Hver og einn fær þá að tala um sína upplifun og sína aðkomu að tilfellinu og þannig segja Kolbrún og Ingibjörg að gott sé að hreinsa hugann eftir erfið útköll.