Reykjanesbær 3-6 sept
Reykjanesbær 3-6 sept

Fréttir

Fyrstu erlendu þátttakendurnir í varnaræfingunni Norðurvíkingi 2007 komnir til landsins
Sunnudagur 12. ágúst 2007 kl. 16:03

Fyrstu erlendu þátttakendurnir í varnaræfingunni Norðurvíkingi 2007 komnir til landsins

Fyrstu erlendu þátttakendurnir í varnaræfingunni Norðurvíkingi 2007 komu til landsins sl. föstudag með E-3A AWACS ratsjárflugvél Atlantshafsbandalagsins og P-3C Orion eftirlitsflugvél norska flughersins. Flugvélar af þessum gerðum taka þátt í loftvarnarþætti æfingarinnar sem hefst á þriðjudag ásamt bandarískum F-15 og norskum F-16 orrustuflugvélum og tveimur KC-135 eldsneytisbirgðaflugvélum sem koma til Keflavikur á mánudag.

Um 170 hermenn frá fjórum löndum munu gista í íbúðum á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli á meðan æfingin stendur í næstu viku, en 50-60 manna áhöfn á danska varðskipinu Triton tekur einnig þátt í æfingunni auk rúmlega 20 íslenskra sérsveitarmanna og 20 manna frá Landhelgisgæslunni. Rúmlega 100 starfsmenna utanríkisráðuneytisins, Flugmálastjórnarinnar á Keflavíkurflugvelli, Ratsjárstofnunar auk annarra hafa haft veg og vanda af undirbúningi æfingarinnar og taka þátt í henni á einn eða annan hátt. 
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25