Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Fyrsta þrívíddarlíkanið af gossvæðinu við Litla-Hrút birt
Skjáskot af þrívíddarlíkani Náttúrufræðistofnunar Íslands.
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
mánudaginn 17. júlí 2023 kl. 11:54

Fyrsta þrívíddarlíkanið af gossvæðinu við Litla-Hrút birt

Náttúrufræðistofnun Íslands hefur birt fyrsta þrívíddarlíkanið af gossvæðinu við Litla-Hrút á Reykjanesskaga en það er unnið út frá ljósmyndum sem teknar voru úr lofti 13. júlí.

Á vef Náttúrufræðistofnunar segir að jarðfræðikortlagning með myndmælingatækni, þar sem teknar eru ljósmyndir úr lofti og myndirnar notaðar við gerð þrívíddarlíkana, nýttist vel við kortlagningu á gossvæðinu í Geldingadal árin 2021 og 2022 og nú árið 2023 við Litla-Hrút. Með þrívíddarlíkönunum má fylgjast með framvindu gossins, áætla rúmmál og þykkt hrauna, hraunrennsli og margt fleira. Fyrsta myndgreiningarlíkanið af gosinu við Litla-Hrút er unnið út frá ljósmyndum sem teknar voru þann 13. júlí en fleiri líkön munu bætast í safnið eftir því sem eldgosinu vindur fram.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Þrívíddarlíkönin eru fyrst og fremst ætluð til fróðleiks og skemmtunar en hægt er að hafa samband við stofnunina til að fá nákvæmari gögn, segir í færslu á vef stofnunarinnar.