Fyrsta sýning ársins opnuð í Listasafni Reykjanesbæjar

Þar eru sýnd verk Kristínar Gunnlaugsdóttur og ber sýningin heitið ...Mátturinn og dýrðin, að eilífu ...
Í verkum Kristínar eru tilvísanir í býsantíska myndhefð en hún stundaði um árabil myndlistarnám á Ítalíu og bjó m.a. í klaustri. Flest verkanna eru unnin á árunum 2001-2004 og hafa aldrei verið sýnd áður.
Kristín útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1987 og fór þá beint í framhaldsnám til Ítalíu. Þar lærði hún m.a. íkonagerð í Róm og stundaði nám í Ríkisakademíunni í Flórens árin 1988-1993. Kristín hefur síðustu 15 árin tekið þátt í mörgum sýningum, hér heima og erlendis og er þetta 10. einkasýning hennar. Kristín hefur hlotið ýmsa styrki og viðurkenningar og hlotið nokkrum sinnum listamannalaun frá Menntamálaráðuneytinu, síðast árið 2002-3. Verk hennar eru í eigu fjölda opinberra safna, kirkna, fyrirtækja og einstaklinga.

Sýningin er opin alla daga frá kl. 13.00 – 17.30 og stendur til 6. mars. Í tilefni 90 ára vígsluafmælis Keflavíkurkirkju eru 4 verk eftir Kristínu sýnd í safnaðarheimili kirkjunnar, Kirkjulundi og verður sá hluti sýningarinnar opnaður kl. 16.00 þennan sama dag. Það er okkur sönn ánægja að kynna bæjarbúum verk þessarar ungu listakonu.
Myndir: Frá sýningunni: VF-ljósmyndir/Hilmar Bragi.