Fyrsta skóflustungan í Reykjaneslínu 1
- áfangi í Suðurnesjalínu 2
Framkvæmdir við Reykjaneslínu 1 hófust í gær með slóðagerð nærri tengivirkinu við Rauðamel. Reykjaneslína 1 er hluti af Suðurnesjalínu 2 verkefninu og mun liggja frá nýju tengivirki á Njarðvíkurheiði og tengjast inn á Rauðamelslínu 1 við Rauðamel. Rauðamelslína 1 mun aftengjast tengivirkinu á Rauðamel og verða hluti af Reykjaneslínu 1 sem mun tengja tengivirki við Reykjanesvirkjun og Njarðvíkurheiði.
Stefnt er að því að slóðagerðin klárist í vor og í framhaldinu verði settar niður undirstöður og stagfestur. Í haust er svo ráðgert að hefja framkvæmdir við yfirbyggingu sem felst í reisingu mastra og strengingu leiðara. Stefnt er að því að ljúka framkvæmdum við línuna í lok þessa árs.