Fyrsta skóflustungan að háhýsi

Í húsinu verða 24 íbúðir á 6-7 hæðum. Hverri íbúð fylgir síðan bílageymsa í kjallara. Að sögn Andrésar Hjaltasonar verður frágangur á húsinu til fyrirmyndar. „Húsið verður klædd að utan með varanlegri klæðningu og álgluggar. Þetta verður fallegt hús sem á eftir að sóma sér vel á þessum stað“, segir Andrés. Stefnt er að því að bygging háhýsisins taki 18-20 mánuði en gert er ráð fyrir að hafist verði handa við sölu upp úr áramótum. „Það er mikil áhugi fyrir þessu húsi hjá fólki á öllum aldri en þó mest hjá fólki upp úr fertugu.“