Fyrsta skóflustungan að 50m innisundlaug og vatnsgarði
Fyrsta skóflustungan að nýrri og glæsilegri innisundlaug og vatnsgarði var tekin í hádeginu í dag. Það voru leikskólabörn frá Garðarseli, börn úr Holtaskóla og sundmenn úr sunddeild Keflavíkur sem voru þess aðnjótandi að eiga fyrstu skóflustunguna.
Athöfnin byrjaði á kynningu Árna Sigfússonar, bæjarstjóra, þar sem hann kynnti fyrir gestum helstu þætti varðandi laugina. Þá var haldið út og var það viðeigandi að krakkarnir tóku fyrstu skóflustunguna í miklum kulda sem var í dag. Veður ætti ekki að vera vandamál í sundiðkun bæjarbúa með tilkomu innilaugarinnar. Eftir skóflustunguna var haldið inn í sundmiðstöð þar sem gestum var boðið upp á heita drykki og með því.
Innilaugin verður í viðbyggingu við Sundmiðstöð Keflavíkur við Sunnubrautina þar sem 50 metra innisundlaug og yfirbyggður vatnsgarður verður. Aðalverktaki við byggingu laugarinnar er Keflavíkurverktakar og eru áætluð verklok í mars 2006. Helstu þættir varðandi laugina eru:
- Laugin mun uppfylla allar kröfur sem keppnislaug fyrir öll innanlandsmót, Norðurlandamót og alþjóðleg mót. Laugin er 15,5m á breidd, 6 brautir, 50m löng og 1,5 til 1,8m á dýpt.
- Í miðri laug er brú sem verður hægt að lyfta upp og þannig breyta lauginni í 25m keppnislaug og þannig er einnig hægt að kenna tveimur bekkjum á sama tíma.
- Í grynnri enda laugarinnar verða upptakanlegar botneiningar á um 200 fermetra svæði sem gerir laugina 1m djúpa og hentar því vel fyrir kennslu ungra barna.
- Búningsklefar innilaugarinnar verða innréttaðir í kjallara núverandi byggingar.
- Vatnagarður (Vatnsleikjasvæði) verður milli nýju innilaugarinnar og gömlu útilaugarinnar.
Heildarkostnaður er áætlaður um 645 milljónir króna.
VF-Myndir/Bjarni - Frá skóflustungu að nýrri viðbyggingu fyrir innilaug og vatnsgarð í morgun.