Fyrsta haustlægðin væntanleg
Veðurstofan gefur út viðvörun, en búist er við fyrstu haustlægðinni í kvöld og á morgun. Reikna má með stormi (meira en 20 m/s) sums staðar V-til á landinu á morgun. Fólk er því hvatt til að ganga frá lausum munum. Minnkandi SV-átt og stöku skúrir, en bjartviðri A-til. Vaxandi SA-átt upp úr hádegi og fer að rigna S-lands. SA 13-18 og rigning S- og V-lands í kvöld, en mun hægari og úrkomulítið NA-til. SA og S víða 15-20 V-til á morgun, hægari A-til. Skúrir S- og V-lands, en annars skýjað og úrkomulítið. Léttir til N- og A-lands síðdegis á morgun. Hiti 12-20 stig, hlýjast NA-til.