Fyrsta beina rútuferðin milli Keflavíkurflugvallar og Akureyrar
Fyrsta beina rútuferð Gray Line frá Keflavíkurflugvelli til Akureyrar var farin síðdegis í gær. Farþegar með flugi frá útlöndum komast þannig samdægurs til höfuðstaðar Norðurlands. Frá Akureyri var svo haldið til baka kl. 23.15 í gærkvöld og komið til Keflavíkurflugvallar klukkan 5:15 í morgun. Farþegar á leið til útlanda ná þannig morgunflugi án þess að þurfa að gista á leiðinni suður. Þetta er í fyrsta skipti sem boðið er upp á viðstöðulausar áætlunarferðir á milli Keflavíkurflugvallar og Akureyrar. Í apríl og maí verður ekið á milli þrisvar sinnum í viku en daglega yfir sumarið, fram í miðjan september.