FYRSTA 2000-LOÐNAN
Fyrsti loðnufarmurinn til Grindavíkur á árinu 2000 kom í dag þegar Oddeyrin EA kom síðdegis með um 700 tonn af loðnu til bræðslu.Loðnan er veidd úti fyrir Austurlandi og fer öll í bræðslu hjá Samherja hf. í Grindavík. Stærri tíðindi verða á morgun í Grindavík þegar stærsta loðnufarmi sem komið hefur þangað varður landað. Þá kemur eitt skip SR-mjöls þangað með rúm 1200 tonn af loðnu. Nánar á netinu á morgun.