Fyrrum flugvallarstjóri sækir um bæjarstjórann í Fjarðabyggð
Tuttugu og þrír sóttu um stöðu bæjarstjóra Fjarðabyggð sem auglýst var í lok júní en umsóknarfrestur rann út fyrir tíu dögum. Fimm drógu umsókn sína til baka. Tveir fyrrum bæjarstjórar, einn fyrrum þingmaður og fimm heimamenn eru meðal umsækjenda. Aðeins tvær konur sækja um stöðuna. Einn Suðurnesjamaður, Björn Ingi Knútsson, fyrrverandi flugvallarstjóri á Keflavíkurflugvelli er meðal umsækjenda. Björn býr núna á Fáskrúðsfirði með konu sinni, Jónu Kristínu Þorvaldsdóttur, en hún tók við sem sóknarprestur í sveitarfélaginu í fyrra.
Umsækjendalistinn:
Andrés Sigurvinsson, verkefnisstjóri, Árborg
Ásgeir Magnússon, forstöðumaður, Akureyri
Ásta G. Hafberg Sigmundsdóttir, háskólanemi, Kópavogi
Björn Ingi Knútsson Höiriis, ráðgjafi, Fjarðabyggð
Daði Einarsson, ráðgjafi, Búlgaríu
Einar Már Sigurðarson, skólastjóri, Fjarðabyggð
Gestur Valgeir Gestsson, fararstjóri, Fjarðabyggð
Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, bæjarstjóri, Hellu
Gunnar Jónsson, forstöðumaður, Fjarðabyggð
Jakob Ingi Jakobsson, lögfræðingur, Vogum
Jóna Árný Þórðardóttir, löggiltur endurskoðandi, Fjarðabyggð
Ólafur Áki Ragnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri, Djúpavogi
Óskar Baldursson, viðskipafræðingur, Garðabæ
Sigurður Pétur Hjaltason, lögfræðingur, Akureyri
Sigurður Blöndal Birgisson, lektor, Danmörku
Sigurður Sigurðsson, verkfræðingur, Garðabæ
Þorsteinn Frímann Sigurðsson, rekstrarhagfræðingur, Garðabæ
Þorvaldur Einarsson, yfirflokksstjóri, Fjarðabyggð
VF/mynd: Björn Ingi og Jóna Kristín.