Fyrirsláttur, segir Sigmar
Sigmar Eðvarðsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Grindavík, segir það fyrirslátt að bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar hafi verið óánægðir með meirihlutasamstarfið í bæjarstjórn. Þetta kemur fram á mbl.is í morgun.
Sigmar segir í samtali við mbl að flokkarnir hafi unnið eftir málaefnasamningi sem var gerður í upphafi kjörtímabilsins af fullum heilindum þar til nú. Hann segir allar ásakanir um trúnaðarbrest ekki neitt annað en tilraun til að sprengja meirihlutasamstarfið og ná í bæjarstjórastólinn. VF hefur ekki náð tali af Sigmari í morgun.