Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Fyrirlestraröð um fjölskyldur og einstaklinga á erfiðum tímum
Fimmtudagur 23. október 2008 kl. 14:04

Fyrirlestraröð um fjölskyldur og einstaklinga á erfiðum tímum



Næstu sex fimmtudagskvöld mun kirkjan í Sandgerði og Garði í samvinnu við sveitarfélögin Sandgerðisbæ og Garð standa fyrir fyrirlestraröð þar sem fjallað verður um brýn mál er tengjast fjölskyldum og einstaklingum á erfiðum tímum í íslensku samfélagi.

Fjallað verður um fjármál, næringarfræði, hvernig hægt er að drýgja matinn, um samskipti innan fjölskyldunnar og hvernig við getum styrkt og hlúð að hverju öðru á erfiðum tímum, segir í fréttatilkynningu.

Fyrsti fyrirlesturinn verður fimmtudaginn 30. október kl. 20 í safnaðarheimilinu í Sandgerði, þá mun sr. Vigfús Bjarni Albertsson sjúkrahúsprestur flytja fyrirlestur er ber yfirskriftina „Fjölskyldan og sjálfsmyndin þegar að þrengir”. Í fyrirlestrinum verður fjallað um viðbrögð fjölskyldunnar þegar tekist er á við kreppu og áfall í ljósi breyttra samfélagsaðstæðna. Mikilvægt sé að kynslóðirnar geti hlúð að hver annarri og varðveitt yngsta fólkið.

Fyrirlestrarnir verða haldnir til skiptis í Sandgerði og Garði. Hver fyrirlestur hefst á stuttri helgistund. Boðið verður upp á kaffi og umræður eftir hvern fyrirlestur.
Fyrirlestrarnir eru öllum opnir að kostnaðarlausu. Sérstaklega eru foreldrar, og þeir sem að vinna með börnum og ungu fólki, hvattir til að sækja þá.


Ljósmynd/elg.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024