Fyrirlestrar um lestur, lestrargreiningu og tengsl við málþroska barna
Skólaskrifstofa Reykjanesbæjar hefur boðið Félagi talkennara og talmeinafræðinga (FTT), sem á tuttugu ára afmæli í ár, að halda sinn árlega landsfund í fundaraðstöðu skrifstofunnar í Kjarna laugardaginn 29. september. Eiríkur Hermannsson fræðslustjóri og Kristinn Hilmarsson talmeinafræðingur munu kynna starfsemi Skólaskrifstofunnar, starfsaðstöðu og þjónustu við íbúa og síðdegis heldur hópurinn í Bláa Lónið.
Að loknu þinghaldi, frá kl. 14:00 til 16:00, býður FTT upp á fjóra stutta fyrirlestra sem allir tengjast lestri. Fyrirlestrarnir eru hugsaðir jafnt fyrir þá sem vinna með börnum og foreldra.
Eins og fyrr er sagt er öllum heimill aðgangur á meðan húsrúm leyfir. Fyrirlestrarnir verða á Skólaskrifstofu Reykjanesbæjar í Kjarna að Hafnargötu 57. Gengið er inn að norðanverðu.