Fylliraftur í Reykjavík sagðist ætla að hend sér í sjóinn í Keflavík
Talsverð ölvun var á næturvaktinni hjá lögreglunni í Keflavík og bárust fjögur ölvunarútköll þar sem ofurölvi fólki var ekið heim. Á þriðja tímanum í nótt var hringt í Fjarskiptamiðstöð lögreglunnar, 112, og kvaðst sá sem hringdi vera við smábátahöfnina í Gróf og ætlaði að henda sér í sjóinn. Var lögreglan send á staðinn en þetta reyndist vera gabb og var sá sem hringdi staddur á öldurhúsi í Reykjavík.