Fylgjast með hljóðstigi frá flugumferð
Unnið er að uppsetningu á hljóðmælingakerfi á Keflavíkurflugvelli. Uppsetning þess var kynnt á íbúafundi í Reykjanesbæ í maí sl. Mælingarnar verða opnar almenningi á vef Isavia og þannig munu íbúar betur geta fylgst með hljóðstigi frá flugumferð og gert betur grein fyrir því í ábendingum hvaða flug skapa ónæði.
Kerfið er sett upp af danska fyrirtækinu Brüel & Kjær og hefur verið unnið að því um nokkurra mánaða skeið. Nú hefur fyrsti fasi kerfisins verið settur í loftið og þar er unnt að sjá hljóðmælingar frá einum mælanna í rauntíma, en í fasa tvö verða flugupplýsingar tengdar við hljóðmælingarnar.
Tenging við flugupplýsingar hefur tafist í forritun en búist er við að þær verði komnar inn í byrjun júlí.