Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Furðurverur á þrettándagleði í Vogum
Miðvikudagur 12. janúar 2005 kl. 12:19

Furðurverur á þrettándagleði í Vogum

Mikið fjör var á þrettándagleði í Vogum. Það hefur tíðkast í þó nokkur ár að hreppsbúar klæði sig upp á og skarti hinum ýmsu gerfum, sem oft á tíðum eru hönnuð sérstaklega fyrir þennan dag. Engin undantekning var á þetta árið.

Safnaðist mannfjöldi saman við samkomuhús staðarins, Glaðheima, þar sem börnunum var boðið upp á andlitsmálningu og þaðan marserað fylktu liði með kóng og drottningu í fararbroddi á sjávarkambinn fyrir neðan Stóru-Vogaskóla.  Þar var kveikt í brennunni og sungið og trallað undir söng viðstaddra. Mikilfenglegasta flugeldasýning björgunarsveitarmanna sem sést hefur á svæðinu rauf síðan kyrrð himinhvolfsins, við mikinn fögnuð viðstaddra.

Að lokum var gengið fylktu liði í Íþróttamiðstöðina þar sem gleðin hélt áfram um stund við undirleik harmónikku og gítars og börn jafnt sem fullorðnir dilluðu sér í takt við tónlistina.

Fjölmargir skrautlegir gestir sýndu sig þetta kvöld og var gaman að sjá allar þær furðuverur sem leynast í Vogunum og voru þær allar leystar út með verðlaunum.

Mynd/vogar.is Þessi hugprúði riddari var á brennunni ásamt álfaprinsessunni

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024