Sjómannakveðjur 2
Sjómannakveðjur 2

Fréttir

Furða sig á að fjölmiðlar fengu Capacent skýrslu á undan bæjarfulltrúum
Fimmtudagur 11. febrúar 2010 kl. 11:19

Furða sig á að fjölmiðlar fengu Capacent skýrslu á undan bæjarfulltrúum


Bæjarfulltrúar A-listans í bæjarráði Reykjanesbæjar furða sig á því að skýrsla Capacent um áætlaðar framtíðartekjur bæjarsjóðs skuli vera komin til fjölmiðla áður en kjörnir fulltrúar sveitarfélagins hafi fengið hana í hendur og haft möguleika á að fara yfir efni hennar. Þetta kemur fram í bókun A-listans á bæjarráðsfundi í morgun. Fréttablaðið fjallaði um efni skýrslunnar í morgun og vf.is í kjölfarið.

Guðbrandur Einarssonn lagði fram spurningar og bókun fyrir hönd minnihlutans þar sem spurt er á hvaða vettvangi ákvörðun um gerð skýrslunnar var tekin. Þá er einnig spurt hver kostnaður Reykjanesbæjar sé vegna hennar.

„Jafnframt óskum við eftir því að það verði bókað að við lýsum furðu okkar á því að ofangreind skýrsla skuli vera komin til fjölmiðla áður en kjörnir fulltrúar sveitarfélagsins hafa fengið hana í hendur og haft möguleika á því að fara yfir efni hennar. Rétt er að benda á að í skýrslunni er eingöngu verið að benda á atvinnutækifæri sem vonandi gætu orðið að veruleika. Flest þessara atriða er þó ekki fullburða og því eru áætlaðar tekjur af þeim í fullkominni óvissu. Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga benti á það í bréfi sem hún sendi bæjarstjórn Reykjanesbæjar að óvissu gætti í tekjuáætlun sveitarfélagsins vegna ársins 2010. Þessari skýrslu er kannski ætlað að breiða yfir þessa skoðun eftirlitsnefndarinnar?“ segir í bókun minnihlutans.


„Skýrsla Capacent er unnin til upplýsingar fyrir Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga eins og fram kemur í svari til nefndarinnar á síðasta ári. Skýrslan var birt nefndinni í lok síðustu viku og nú kynnt í bæjarráði. Það er leitt að minnihluti bæjarráðs geti ekki fagnað með meirihlutanum jákvæðri niðurstöðu skýrslunnar. Skýrslan sýnir að áætlaðar skatttekjur af atvinnurekstri næstu 4 ár verða væntanlega verulega hærri en gert hefur verið ráð fyrir í fjárhagsáætlunum Reykjanesbæjar. Af varfærnissjónarmiðum er þó ekki gerð tillaga um að breyta þeim áætlunum.
Það er mikil rangfærsla að skýrslunni sé ætlað að „breiða yfir skoðun eftirlitsnefndarinnar“ um óvissu í fjárhagsáætlunum sveitarfélagsins heldur þvert á móti er hún að svara vangaveltum nefndarinnar um óvissuna,“ segir í bókun sem Böðvar Jónsson lagði fram fyrir hönd meirihlutans.

---

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Ljósmynd/Oddgeir Karlsson - Horft yfir Reykjanesbæ.