Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Fundur um atvinnumál á Suðurnesjum
Mánudagur 1. mars 2010 kl. 08:28

Fundur um atvinnumál á Suðurnesjum


Fundur um atvinnumál á Suðurnesjum verður haldinn á sal Gerðaskóla í Garði næstkomandi fimmtudag. Samkvæmt fundarboði verður staðan á vinnumarkaði skýrð, hver staðan sé og hvert stefnir.  Sveitarfélagið Garður boðar til fundarins.
„Fundarboðendur vilja stíga fram og hefja viðræður um atvinnumál út fyrir ramma pólitískrar umræðu og leita eftir breiðri samstöðu stjórnvalda, atvinnulífs og sveitarfélaga í landinu til að koma hjólum atvinnulífsins af stað. Við hvetjum fólk sem leitar atvinnutækifæra, fólk sem vill fá svör við spurningum sínum um atvinnuhorfur í náinni framtíð og aðra þá sem láta atvinnumál sig varða að snúa saman bökum og mæta á fundinn,“ segir í fundarboði.
 
Þeir sem taka til máls á fundunum eru Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra, Grímur Sæmundsen varaformaður Samtaka Atvinnulífsins og forstjóri Bláa lónsins, Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ, Ágúst Hafberg framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og samskipta Norðuráls, Aðalheiður Héðinsdóttir framkvæmdastjóri Kaffitárs, Ragnheiður Elín Árnadóttir, alþingismaður og Oddný G. Harðardóttir, alþingismaður.

Fundurinn verður næstkomandi fimmtudag eins og áður segir og hefst kl. 17:15.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024