Fundur með Sjálfstæðismönnum á Nesvöllum í dag
Forystumenn Sjálfstæðisflokksins standa fyrir svörum á umræðufundi á Nesvöllum í Reykjanesbæ í dag kl. 18.
Bjarni Benediktsson, formaður, Hanna Birna Kristjánsdóttir, varaformaður og Ragnheiður Elín Árnadóttir, oddviti Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi verða fyrir hönd flokksins á fundinum. „Hvernig vinnum við í þágu heimilanna“ er yfirskrift fundarins.