Fundur kennara í anda þjóðfundar
Fulltrúar bæjaryfirvalda í Reykjanesbæ héldu vinnufund með grunnskólakennurum í Stapa á þriðjudag. Til fundarins var boðað til að eiga samtal við kennara, sem ákveðið var í heimsóknum fulltrúa bæjaryfirvalda til starfsfólks grunnskólanna í byrjun desember síðastliðinn þegar samningar kennara voru lausir og mikil óánægja í þeirra röðum. Vinnufundurinn var í anda Þjóðfundar.
Helgi Arnarson, sviðsstjóri Fræðslusviðs Reykjanesbæjar, setti fundinn og ræddi ástæður hans. Í máli Helga kom fram að góður árangur hefði náðst í grunnskólunum í Reykjanesbæ og hann skynjaði áræðni og baráttugleði í hópi kennara til að viðhalda þeim árangri. Hann vitnaði í bók frá Unesco þar sem fjallað er um hvað einkenni góðan kennara. Eitt barnanna sem spurt var svaraði: „Góður kennari kennir ekki aðeins með huganum heldur einnig hjartanu.“
Umræðuefni var skipt í fjóra hluta; álag á kennara, vinnuaðstöðu og aðbúnað, samskipti og upplýsingagjöf, viðveru, vinnutíma og vinnumat. Kennarar voru hvattir til að skrifa niður allt sem kom upp í hugann. Mikið af góðum hugmyndum komu fram á fundinum og mun Fræðslusvið Reykjanesbæjar vinna úr þeim.