Fundur í Stapa um efnahagsumhverfi fyrirtækja
Íslandsbanki stendur fyrir fundi um efnahagsumhverfi fyrirtækja og efnahagsmál í Stapa í fyrramálið, fimmtudag og hefst hann kl. 8.30 með ávarpi Sighvats Gunnarssonar, útibússtjóra.
Frummælendur eru Una Steinsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptabankasviðs Íslandsbanka, Sigþór Kristinn Skúlason, framkvæmdastjóri Airport Associates og UPS, Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka og loks Guðmundur M. Daðason frá gjaldeyrismiðlun Íslandsbanka.
Þá verða umræður og fyrirspurnir og áætlað er að fundi verði slitið kl. 10.