Föstudagur 12. apríl 2019 kl. 10:03
Fundu þýfi í húsleit að fengnum dómsúrskurði
Verkfærum að verðmæti á bilinu 500 – 700 þúsund var stolið úr vinnubifreið í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á miðvikudagsmorgun.
Lögregla gerði húsleit í íbúðarhúsnæði í Keflavík síðar sama dag, að fengnum dómsúrskurði, og þar fundust verkfærin sem stolið hafði verið.