Sjómannakveðjur 3
Sjómannakveðjur 3

Fréttir

Föstudagur 7. september 2001 kl. 09:39

Fundu helli á Reykjanesi sem getið er í þjóðsögum

Rannsóknir nokkurra rannsóknarlögreglumanna hafa leitt í ljós að sagnir um svonefndan Bálkahelli í Klofningum á Reykjanesi eiga við rök að styðjast. Hér er þó ekki um að ræða opinbera rannsókn í sakamáli, sem tengist hellinum á nokkurn hátt, heldur einskæran útivistaráhuga fólks í rannsóknardeild lögreglunnar, sem myndað hefur hópinn FERLIR (Ferðahópur rannsóknardeildar lögreglunnar í Reykjavík). mbl.is greindi frá.

Hellirinn er í heild um 500 metra langur. Hraunnálar eru í loftum og dropasteinar á gólfi. Lengsti heillegi hluti hans er vel á þriðja hundrað metra. Hellirinn er stór og víður og skiptist hellisrásin í tvennt á einum stað áður en rásirnar sameinast aftur. Þótt hellisopið væri vandfundið í úfnu hrauninu í vetur gat það ekki leynst lengi fyrir þjálfuðum rannsóknarlögreglumönnum, sem beittu kunnri reynslu sinni við leitina.

Upphaflega leituðu lögreglumennirnir að svonefndum Arngrímshelli sem getið er í gamalli þjóðsögu. Sá hellir mun vera nefndur eftir Arngrími nokkrum bónda sem nýtti hann sem fjárhelli. Lögreglumennirnir fundu Arngrímshelli og húsatóttir við hellismunnann, sem einnig er getið í sögunni. Kviknaði þá áhugi fyrir að finna annan helli, Bálkahelli, sem sagan sagði að ætti að vera í nágrenninu. Bálkahellir fannst eftir nokkra leit er einn lögreglumannanna datt bókstaflega fyrirvaralaust niður um hellisopið og þar með voru komnar sterkar vísbendingar um að staðháttum væri rétt lýst í þjóðsögunni. Á ferð um undirheimana var ekki að sjá nein merki um fyrrimannaferðir.

Bílakjarninn
Bílakjarninn