Fundu handsprengju við Hafnaveg
Björgunarsveitarfólk á Reykjanesi gekk fram á handsprengju við leitir á svæðinu í gær, en sprengjan fannst skammt frá Hafnavegi. Sprengjusérfræðingar ríkislögreglustjóra fóru á vettvang og rannsökuðu handsprengjuna, en hún reyndist óvirk æfingasprengja líklegast frá dögum ameríska hersins á Íslandi. Sprengjusérfræðingar tóku æfingasprengjuna í sína vörslu.