Föstudagur 6. janúar 2017 kl. 12:14
Fundu gaddakylfu og dóp við húsleit
Lögreglan á Suðurnesjum fann nokkuð af fíkniefnum í húsleit sem gerð var í umdæminu í vikunni. Um var að ræða meint amfetamín og kannabisefni. Þá fundust öxi og gaddakylfa, auk verkfæra, sem lögregla haldlagði.