Fundu dóp og þýfi við húsleit
Lögreglan á Suðurnesjum handtók, um kl. 1 í nótt, þrjá aðila vegna gruns um fíkniefnamisferli. Lítilræði af amfetamíni fannst á einum aðilanum. Við leit í bifreið fundust hljómtæki og skartgripir sem ekki var hægt að gera grein fyrir. Farið var í húsleit og er málið enn í rannsókn.
Skömmu eftir miðnætti stöðvaði lögregla bifreið á Reykjanesbraut vegna lélegs ljósabúnaðar. Bifreiðin var einnig á negldum hjólbörðum.
Mynd úr safni VF