Fundað með lánveitendum Reykjaneshafnar
Forsvarsmenn Reykjaneshafnar og lánveitendur hennar komu saman til fundar núna kl. 10 á Hilton Hótelinu í Reykjavík. Tilgangur fundarins er að upplýsa lánveitendur um aðdraganda og orsakir þeirra greiðsluerfiðleika sem Reykjaneshöfn er í. Farið verður yfir þá stöðu sem myndast hefur og væntingar til framtíðar miðað við óbreytta stefnu, segir í fundarboði.
Jafnframt mun Reykjaneshöfn leggja fyrir lánveitendur tillögu sem snýr að því að skapa svigrúm fyrir höfnina til að marka nýja stefnu sem tryggja á fullar heimtur fyrir lánadrottna.
Meginatriði tillögunar eru m.a. fólgnar í því að engar greiðslur eða greiðslur vaxta og afborgana verði fyrr en 1. maí á næsta ári. Yfirstandandi fjárfestingaverkefni verða stöðvuð og engin ný verkefni sett í gang.
Nauðsynlegt er að allir kröfuhafar samþykki tillöguna formlega. Reiknað er með að fundurinn standi yfir til hádegis.