Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Fundað með íbúum Pósthússtrætis 3 í dag
Mánudagur 22. október 2018 kl. 10:38

Fundað með íbúum Pósthússtrætis 3 í dag

Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar mun í dag funda með íbúum Pósthússtrætis 3 í Keflavík vegna skipulagsbreytingar sem unnið er að við Pósthússtræti. Fundurinn fer fram á bæjarskrifstofunni.
 
Forsaga málsins er að Mannvit ehf. lagði fram erindi um skipulagsbreytingu sem kemur fram á uppdrætti dagsettum 2. júlí 2018 sem tekið var fyrir á fundi umhverfis og skipulagsráðs á fundi nr. 212 þann 12. júlí 2018. Erindi var sent í grenndarkynningu sem lauk þann 12. september 2018. 
 
Fjórar athugasemdir bárust þar af ein með 43 undirskriftum íbúa Pósthússtræti 3 sem vísar til einróma samþykktar stjórnar húsfélagsins á bréfi frá JA lögmönnum dagsett 29. ágúst 2018. Megin inntak flestra mótmæla er nálægð húsa, fjöldi íbúða og fjöldi bílastæða.
 
Unnin hefur verið könnun á vindafari við Pósthússtræti í Keflavík og er niðurstöðu könnunarinnar lýst í minnisblaði Verkfræðistofunnar Eflu. Framkvæmdir við byggingu háhýsis við Pósthússtræti 5 hafa verið stopp í nokkrar vikur vegna breytingar á skipulagi og þá hafa íbúar að Pósthússtræti 3 mótmælt nálægð nýja háhýsisins en aðeins eru 12 metrar á milli bygginganna. Þá var byggingunni að Pósthússtræti snúið 180 gráður á byggingareit sínum.
 
Umhverfis- og skipulagsráð óskaði eftir gögnum um vindálag sem nú hefur verið skilað inn. Gögnin segja að breytingin er að líkindum til batnaðar varðandi sviptivinda við húsið.
 
„Breytingin er að líkindum til batnaðar varðandi sviptivinda við húsið,“ segir í gögnum um vindálag við Pósthússtræti 3 og 5 sem lagt var fyrir umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar á dögunum. Á þeim fundi var ákveðið að halda fund með íbúum Pósthússtrætis 3 og kynna málið nánar.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024