Fundað með Grindvíkingum síðdegis í dag
Uppýsingafundur fyrir íbúa Grindavíkur verður haldinn í dag, 2. nóvember, í íþróttamiðstöðinni og hefst hann kl. 17:00. Tilefni fundarins eru jarðhræringar norðvestan við fjallið Þorbjörn.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi.
Frummælendur:
-    Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum
-    Kristín Jónsdóttir, deildarstjóri eldvirkni, jarðskjálfta og jarðhniks hjá Veðurstofu Íslands
-    Kristinn Harðarson, framkvæmdastjóri framleiðslu hjá HS Orku
-    Egill Sigmundsson, sviðsstjóri rafmagnssviðs hjá HS Veitum 
-    Inga Guðlaug Helgadóttir, deildarstjóri sálfélagslegrar þjónustu HSS og Ragnhildur Magnúsdóttir, sálfræðingur og teymisstjóri barna hjá HSS. (Líðan á óvissutímum)
Að loknum framsögum verða umræður og fyrirspurnir
Til svara auk frummælenda (panelumræður):
-    Björn Oddsson, jarðeðlisfræðingur hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra
-    Hulda Ragnheiður Árnadóttir, forstjóri Náttúruhamfaratryggingar Íslands
Fundarstjóri: Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				