Safnahelgi
Safnahelgi

Fréttir

Fullur stuðningur við „Betra líf“ SÁÁ
Fimmtudagur 25. október 2012 kl. 16:00

Fullur stuðningur við „Betra líf“ SÁÁ

Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti í dag samhljóða eftifarandi yfirlýsingu:

„Bæjarráð Reykjanesbæjar tekur undir þau sjónarmið sem koma fram í „frumvarpi“ SÁÁ undir heitinu „Betra líf“, og veitir því fullan stuðning. Markmið frumvarpsins er að gerbylta lífsgæðum þeirra sem þjást vegna áfengis- og vímuefnavandans og bæta með því samfélagið allt. Áfengis- og vímuefnasýki er sá sjúkdómur sem hefur mest áhrif á flestar fjölskyldur á Íslandi. Mikilvægt er að endurheimta ómæld verðmæti sem í þeim einstaklingum búa sem enn þjást vegna áfengis- og vímuefnavandans mun það hafa margföld jákvæð áhrif á líf alls almennings.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Mikilvægt er að sveitarfélög og ríki taki höndum saman með SÁÁ um vinnu að þessum málum. Fjármunir til þessa verkefnis eru til í gegnum áfengisgjald sem þegar er innheimt“.

Bílakjarninn
Bílakjarninn