Fullt hús hjá Framsókn
Framsóknarmenn í Reykjanesbæ opnuðu kosningaskrifstofu sína, Hafnargötu 62, 2.maí sl. Frambjóðendur, stuðningsfólk, ásamt þingmönnum Framsóknar og forsætisráðherra Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, fylltu húsið og skemmtu sér saman frameftir kvöldi.
Oddviti framboðsins og bæjarfulltrúi Framsóknar, Kristinn Þór Jakobsson hélt stutta tölu um stöðu bæjarmála og þá áherslur sem Framsókn ætlar að leggja á, í framtíðinni. Kristinn Þór hefur verið eini bæjarfulltrúi Framsóknar sl. fjögur ár en stefna framboðsins er að fjölga fulltrúum og ná inn fólki í allar nefndir bæjarins svo Framsókn geti haft áhrif á bæjarmálin.
Þrátt fyrir að Framsókn hafi aðeins haft einn fulltrúa sl. fjögur ár þá hefur Framsókn náð nokkrum stefnumálum í gegn, m.a. stofnun Ungmennaráðs Reykjanesbæjar, siðareglur bæjarfulltrúa voru samþykktar og Kristinn Þór barðist einnig fyrir að tvíburaforeldrar fengju jafnar niðurgreiðslur og aðrir foreldrar þegar börnin eru í dagvist hjá dagforeldrum. Þá gildi sami systkinaafsláttur og á leikskólum.
Silja Dögg Gunnarsdóttir, varabæjarfulltrúi Framsóknar og núverandi alþingismaður, fór yfir hið pólitíska landslag á landsvísu og í bæjarmálum og sagði m.a. að nú væri græna vorið að renna upp.
Kosningamiðstöðin verður opin alla virka daga frá kl. 14-22 og um helgar milli kl. 11-16. Á fimmtudögum kl. 18.00 verður boðið upp á súpu þar sem bæjarbúar geta litið við og spjallað við frambjóðendur.
Frambjóðendur Framsóknar í Reykjanesbæ