Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Fullkominn stuðningur við yfirstjórn embættisins
Miðvikudagur 12. mars 2008 kl. 20:26

Fullkominn stuðningur við yfirstjórn embættisins

Lögreglufélag Suðurnesja boðaði til almenns félagsfundar nú í eftirmiðdaginn vegna þeirrar alvarlegu stöðu sem blasir við vegna fregna af niðurskurði á löggæslu á Suðurnesjum. Á fundinn mættu fjöldi lögreglumanna og var þungt hljóð í mönnum. Fundurinn sendi frá eftirfarandi ályktun:

,,Félagsmenn Lögreglufélags Suðurnesja hafa þungar áhyggjur af yfirvofandi niðurskurði hjá embætti Lögreglu- og Tollstjórans á Suðurnesjum. Rekstur embættisins er ólíkur rekstri annarra embætta að því leyti að aðeins helmingur rekstrarins er á fjárlögum en aðrar fjárheimildir koma af sértekjum. Þessar sértekjur eru óstöðugar og þegar þær bresta þá eru allar rekstrarforsendur í uppnámi. Ljóst er að kostnaður við rekstur embættisins hefur fylgt verðlagsþróun þó að fjárveitingar til embættisins hafi það ekki. Það eru þessir þættir sem munu stuðla að niðurskurði hjá embættinu. Félagsmenn Lögreglufélags Suðurnesja settu fram ótvíræðan og fullkominn stuðning við Lögreglu- og Tollstjórann á Suðurnesjum og yfirstjórn embættisins. Vonum við að hægt verði að finna farsæla lausn á þessum alvarlega vanda með hag Suðurnesjabúa og flugfarþega í huga sem þegar búa við skerta þjónustu.“

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Stjórn Lögreglufélags Suðurnesja vonast til að sjá sem flesta sem láta þetta mál sig varða á fundi sem haldinn verður að Duushúsum í Reykjanesbæ á morgun þann 13. mars 2008 klukkan 20:00.

Virðingarfyllst
Stjórn Lögreglufélags Suðurnesja

Mynd: Frá fundi Lögreglufélags Suðurnesja nú síðdegis.