Fullfrískur í stæði fyrir fatlaða

Einn ökumaður var stöðvaður vegna gruns um ölvun við akstur. Eitt umferðaróhapp varð í umdæminu. Engin slys urðu á fólki. Einn ökumaður var kærður fyrir að leggja í stæði sem er sérmerkt fyrir fatlaða utan við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Eigendur tveggja ökutækja voru boðaðir með bifreiðar sínar til skoðunar. Þeir höfðu ekki sinnt því að færa þær til aðalskoðunar á réttum tíma.
Á kvöldvaktinni varð eitt umferðaróhapp í umdæminu. Engin slys urðu á fólki. Einn ökumaður var kærður fyrir að vera ekki með öryggisbelti við aksturinn.