FS-ingar gerðu það gott á Íslandsmóti iðn- og verkgreina
Fjölbrautaskóli Suðurnesja sendi nokkra fulltrúa á Íslandsmót iðn- og verkgreina sem fór fram í Smáralind á föstudaginn síðastliðinn. Í hársnyrtingu kepptu þær E. Kamilla Wilberg Antonsdóttir, Svanlaug Birna Sverrisdóttir og Ingey Arna Sigurðardóttir, en sú síðastnefnda hreppti annað sætið í keppninni.
Í trésmíði kepptu þeir Freyr Marínó Valgarðsson og Óttar Steinn Magnússon. Tröppustóllinn sem var verkefni frá Gunnari Valdimarssyni úr FS vakti mikla athygli og höfðu margir áhuga á að kaupa stóllinn. Andri Már Þorvarðarson keppti í rafmagni og lenti í öðru sæti í þeirri grein.
VF-mynd/Úr einkasafni