Sjómannakveðjur 3
Sjómannakveðjur 3

Fréttir

FS er ein af stofnunum ársins
Föstudagur 13. maí 2016 kl. 15:03

FS er ein af stofnunum ársins

Annað árið í röð sem FS verður fyrir valinu

Niðurstöður úr könnuninni um Stofnun ársins voru kynntar á dögunum. Var þetta ellefta árið í röð sem stofnun ársins er valin, en könnunin sem er ein sú stærsta sinnar tegundar á landinu. Í flokki stórra stofnanna sem hafa 50 starfsmenn eða fleiri varð Fjölbrautaskóli Suðurnesja í öðru sæti annað árið í röð.

Könnunin er unnin af Gallup í samstarfi við VR, Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og Fjármála - og efnahagsáðuneytið. Val á Stofnun ársins er byggt á svörum tæplega 8.000 starfsmanna hjá ríki og sjálfseignarstofnunum sem starfa hjá 142 stofnunum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn